Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
Daman lætur bíða eftir sér
31.3.2008 | 21:39
Já sú stutta ætlar aðeins að láta bíða eftir sér, en það eru víst allar konur að ganga með eitthvað framyfir nú á dögum...ég spái henni ekki í heiminn fyrr en 2 april...eða kallinn öllu heldur og ég er alveg á því líka....
Ég er eitthvað búin að vera að spá í nafni á krílið en er bara alveg blönk á hugmyndir...einhverjar uppástungur?? Var alveg með nöfnin á hinum stelpunum á hreinu bara á miðri meðgöngu eða svo en ég held að við verðum að sjá þessa dömu áður en það verður eitthvað ákveðið.....en allavega hún mun fá eitthvað nafn eða nöfn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bob Dylan
28.3.2008 | 16:19
Ég neyddist til að setjast við tölvuna því ég varð að kaupa miða á tónleikana með Dylan og þá er eins gott að blogga smá í leiðinni....
Mig langar líka mikið á Eric Clapton, en hann hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér síðan ég var 10-11 ára og þá sérstaklega lagið Lay down sally, bara fæ ekki leið á þessu lagi....en ég held að það sé uppselt á hann og læt þetta þá bara duga.....en ef ég hefði þurft að velja á annað borð hefði ég farið á þessa tónleika með Dylan, en svo væri ég til í að fá Rolling Stones - Tinu Turner og Pink floyd, svo ég biðji nú ekki um meira Annars kom nú annar söngvarinn hér fyrir nokkrum árum, held það hafi verið Gilmour, en ég missti af því algerlega
Já ég var bara eitthvað annars hugar, en ég ætlaði sko alveg að fara, þangað til ég var búin að missa af öllu saman og ætla ekki að láta það gerast núna, enda hef ég enga afsökun núna...alveg kýrskýr í kollinum...............Þá að öðru....
Ég er sett núna á Sunnudaginn en alveg er ég viss um að þetta ætlar að vera Aprilbarn, svo ég er bara róleg yfir þessu öllu saman...hef mestar áhyggjur af því að komast ekki niður á fæðingadeild í tæka tíð því síðast fæddi ég heima... um klst eftir fyrstu verki var barnið komið og mamma tók á móti henni áður en sjúkrabíllinn náði á svæðið....og stúlkan sú hefur verið óþolinmóð æ síðan
En nú er eins gott fyrir mig að fara að sækja þær stöllur og bið að heilsa í bili....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tíminn flýgur!
14.3.2008 | 02:05
Jæja nú hef ég ekki bloggað í 5 daga fyrir utan kvabbið hér fyrir neðan...svakalega líður tíminn hratt....en ég bæti úr þessu hér með...
Nú eru rúmar tvær vikur þar til settur dagur rennur upp og mig bara hlakkar til....annars var ég að lesa bloggið hennar Hullu hér áðan og ég bilaðist alveg úr hlátri að það hvarflaði að mér að nú færi fæðingin af stað, þvílík voru átökin að ég hélt ég myndi vekja stelpurnar...
Nú mér gekk ágætlega í þessu blessaða prófi...7.5...hefði betur lesið alla bókina því mér er ekki vel við tölur undir 8, allavega ekki í þessu samhengi....
Jæja nú er ég búin í bakinu....er aðeins farin að finna fyrir óléttunni.... þó það nú væri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nú er mér allri lokið
14.3.2008 | 01:53


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Afi og Amma á elliheimilinu
8.3.2008 | 13:49
Eldra fólkið óskar hlýju,
að einhver muni það.
Gleymd er amma og gamli afi
- geymd á vísum stað.
Lausnin kemur, leyst er biðin,
ljúft er að hverfa heim.
Þá kemur fólkið og krossar yfir
kistulok hjá þeim.
Kaffiboð og krökkt af blómum.
Já kátleg veisla gerð.
En kærleikurinn við kistulokið
er kannski seint á ferð.
(Margrét Eyjólfsdóttir frá Flatey á Breiðafirði)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
afslöppun
7.3.2008 | 19:07
Jæja þá er karlinn farinn útá land framá sunnudag og stelpurnar eru hjá pabba sínum og ég bara ein í kotinu með bumbubúann Við tókum fram strauborðið og réðumst á bleyjurnar og rúmfötin.....betra að vera við öllu búin því þetta styttist óðum.
Já allt í einu er allt orðið fullt af smábarnafötum því elskuleg móðir mín var að koma frá u.s and a ( datt í hug Borat ) , en ég er að reyna að ná í hana núna til að fara með mér eitthvað í óhollustuna....eða Pizza Hut...alltaf á tali....
en svo er þa bara stærðfræðin um helgina og hafa það notalegt....ég er reyndar farin að hlakka til að fá kallinn aftur heim, en það eru ekki 2 tímar síðan hann fór..mér sem fannst alltaf best að vera ein, já það er af sem áður var.......
bið að heilsa ykkur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nip Tuk
4.3.2008 | 23:27
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Merkilegt með mig
4.3.2008 | 23:09
Já alveg er það merkilegt hvað ég get verið upptekin af því að gera ekki neitt nákvæmlega þegar ég þyrfti að vera að læra, eða þegar ég er komin á síðasta snúning með það...ég þarf að klára bók núna fyrir svefninn, þar sem ég tek próf úr henni á morgun....en nei ég finn mér allt mögulegt að gera annað sem mætti sko vel bíða og rúmlega það, eins og að vera að bloggi núna, ekki hefur það verið aðkallandi hingað til....en ég læt vita hvernig gekk í prófinu..
eigið góðar stundir...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)