Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Sæl aftur

  Jæja nú er ég komin með tölvuborð og byrjuð í skólanum, gat reyndar lítið mætt í síðustu viku, bara lá í flensu....hef bara aldrei verið svona lengi veik svo ég muni ( 14 dagar ) og bara alls ekki orðin góð....en ég er að reyna við þetta myndaalbúm og á ekkert nema 2-3 ára gamlar myndir í þessari tölvu, en þetta stendur allt til bóta, ég er ekki mikil tölvumanneskja og flækji þetta allt fyrir mér, kann bara ekki að færa drasl á milli, veit jú að ég get notað einhvern minniskubb.......en hvað um það ég hef ekki kíkt inná bloggið síðan ég gerði síðustu færslu, var búin að steingleyma þessuBlush 

  En ég á að eiga í mars og finnst þetta allt hálf óraunverulegt ennþá, finn lítið fyrir þessu og er með netta kúlu eins og í hin tvö skiptin....en það verður fjör á bænum og allir glaðirSideways


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband