Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Hitt og þetta

  Nú er ég búin að fara útum allt að leita eftir tölvuborði og þau eru öll svo stór sem eitthvað er varið í, þannig að nýi skjárinn er bara undir rúmi og engin tölva tengd...ekki ætla ég að fara að troða tölvunni uppá eldhúsborð....en ég vona að ég reddi þessu í dag því ég er á nálum með að þessi fari að hrynja og allar myndirnar glatist....

  En ég fékk inngöngu í skólann eftir áramót...var hálf smeyk við að nú myndu þeir ekki hleypa mér inn þar sem ég sótti um í fyrra og árið þar á undan og fékk inngöngu en sneri mér að öðru miður skemmtilegu....en allavega þá hlakka ég til...

   Ég er búin að versla megnið af jólagjöfunum....og þá er bara maturinn og tréð eftir, en við vorum of sein í fyrra að kaupa tré...allt uppselt og líka gervitrén, en við vorum samt með tré á jólunum en ég ætla ekki að segja hvernig við redduðum þvíGrin

  Nú ef svo ótrúlega vildi til að ég kæmi ekki með færslu fyrir jól þá bara segi ég við ykkur elskurnar mínar.....

                Gleðileg jól

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband