Sæl aftur
26.1.2008 | 20:46
Jæja nú er ég komin með tölvuborð og byrjuð í skólanum, gat reyndar lítið mætt í síðustu viku, bara lá í flensu....hef bara aldrei verið svona lengi veik svo ég muni ( 14 dagar ) og bara alls ekki orðin góð....en ég er að reyna við þetta myndaalbúm og á ekkert nema 2-3 ára gamlar myndir í þessari tölvu, en þetta stendur allt til bóta, ég er ekki mikil tölvumanneskja og flækji þetta allt fyrir mér, kann bara ekki að færa drasl á milli, veit jú að ég get notað einhvern minniskubb.......en hvað um það ég hef ekki kíkt inná bloggið síðan ég gerði síðustu færslu, var búin að steingleyma þessu
En ég á að eiga í mars og finnst þetta allt hálf óraunverulegt ennþá, finn lítið fyrir þessu og er með netta kúlu eins og í hin tvö skiptin....en það verður fjör á bænum og allir glaðir
Athugasemdir
Hvort er rétt flækji eða flæki?? Einhver??.....finnst þetta j eitthvað svo ekki eiga að vera þarna:)
Helga Nanna Guðmundsdóttir, 26.1.2008 kl. 20:49
til hamingju með bumbuna:) vissi ekki af þessu:) hafðu það gott..
Maríanna Lind Mánadóttir (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 14:43
Takk fyrir það Maríanna
Helga Nanna Guðmundsdóttir, 1.2.2008 kl. 00:52
Guð er góður
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 8.2.2008 kl. 23:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.