Og það er ein daman í viðbót
15.11.2007 | 00:36
Ég fór í sónar á þriðjudag, komin 20 vikur og fékk að vita að ég gengi með stelpu, þannig að sjöunda stelpan er á leiðinni...en ég á tvær fyrir og kallinn fjórar skvísur...mér finnst þetta bara frábært....
Mér líður mjög vel alla daga og hlakka bara til að takast á við þetta allt saman. Hef svosem ekkert meira að segja frekar en fyrri daginn....nema settur dagur er 30 mars ( Hrútur )
Sæl að sinni.
Athugasemdir
Þið eruð aldeilis dugleg í stúlkunum
Þetta er frábært og gott að heilsan þín er góð og hrútsbarn mér líst vel á það 
Katrín Ósk Adamsdóttir, 15.11.2007 kl. 07:46
já til hamingju með það Helga mín bara yndislegt og flott tala því talan 7 er Heilög :)
Gísli Torfi, 15.11.2007 kl. 10:19
takk fyrir það, já gæti ekki verið betri tala
Helga Nanna Guðmundsdóttir, 15.11.2007 kl. 16:49
Sæl Helga
Rakst á bloggið þitt og til hamingju !
Ég fæ eina skvísu í heiminn í byrjun janúar
kv.Ari
ARI (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 12:12
Til hamingju með það,,yngsta mín er hrútur,,yndisleg stelpa
Bergþóra Guðmunds, 17.11.2007 kl. 14:55
Til hamingju sætust
Ég er að undirbúa blogg fyrir þig.....Love you babe
Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 17.11.2007 kl. 23:25
Hæ skvís
Ég er bara aðeins að kíkja
Katrín Ósk Adamsdóttir, 20.11.2007 kl. 21:30
sæl Helga. og takk fyrir góð orð á mína síðu. Og gaman að vita að gangi vel og til hamingju með stelpuna sem kemur í heiminn í mars
Guð blessi þig..
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 21.11.2007 kl. 21:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.